jess loksins annað blogg til að gleðja ykkur. Það er aldeilis hellingur búinn að gerast frá því síðast og ég bara veit varla hvar ég á að byrja, en ætlað stikla vel á stóru og sleppa alveg slatta hah :)
- Horfði á Ísland-Portúgal með popppoka og 2 kóklight inni í stofu; hlýtur að hafa verið skrýtið fyrir þau að heyra hrópin frá mér á íslensku hah...(M18 ætti að kannast við köllin í mér) En algjör bombumörk, hefði ég gefið mikið fyrir að fá að sjá leikinn, tala nú ekki um að ná mynd af mér með CR eins og Darri!vááá
En hafði sett inn status hvort einhver gæti tekið mig með sér og fór ekki verr en svo að Obed lét foreldra sína vita og þau tóku mig með sér, en frönsk stelpa frá tepic er komin að búa með þeim og þau voru að fara hvort eð er. Var bara gaman að sjá einn hafnarboltaleik! En þetta var fyrsti leikur tímabilsins og því svaka ‘kynningaratriði’ og klúrir klappstýrudansar (lol) og hvað eina.
Skildi ekki nærrum því allar reglurnar en fannst gaman að sjá home run! Hahah dúndraði líka einni derhúfu aftur fyrir mig sem hitti einn kallinn í andlitið hehe (ekki jafn brutal og hljómar). Hittum Juliu, Jose Pablo, Deboruh og Elo á leiknum, en sá líka Flaviu! Svo var alltaf verið að sýna fólk á skjánum sem var gaman að sjá stundum. Eftir leikinn kom pabbi Obeds að sækja okkur og fórum við heim til þeirra að borða
- á fimmtudeginum eftir bauð ég slatta af fólki heim í mat, en Cecy keypti fullt af Taco-um og gosi oþh fyrir okkur og svona. Fannst líka fínt ef foreldrarnir vita með hverjum ég er alltaf, en þarna komu nokkrir frændur og frænka mín (sem eru á sama aldri og góðir vinir mínir), allir þeir skiptinemar sem komust og svo vinir mínir sem ég kynntist í gegnum Allen, en þau þekkja öll núna líka til skiptinemanna (sem að fara oftast saman út, erum svona 4-7 sem gerum oft eitthvað saman af þeim) og var bara mikið fjör.
- Guadalajara!
-----á laugardeginum var svo lagt af stað til Guadalajara. Keyrt var í ca 9 tíma en var mun fljótara að líða en ég hafði búist við! komið var við í oxxo-um á leiðinni og bara virt fyrir sér umhverfið! náttúrulega allt öðruvísi en á Íslandi, bara allt þakið gróðri og trjám og einhver ræktun líka. Keyrðum líka framhjá eldgömlu hrauni, gaman að sjá eitthvað sem maður kannaðist við. Oft voru líka stórar eðlur á götunni bara og einu sinni skutust kýr upp á götuna. Í gróðrinum í umhverfinu á leiðinni eru engar gönguleiðir eða neitt, bara hellingur af gróðri og villtu dýralífi! sem að mér fannst allavega merkilegt..Þegar við komum skruppum við í moll til að hitta Brian þar (eldri bróðurinn sem er að læra fjármál þar í háskóla) og fengum okkur að borða á góðum ítölskum. Við fórum síðan í nokkrar 'stórarogleiðinlegar'búðir til að finna hluti fyrir nýju íbúðina hans Brian, og í endann (einum og hálfum tíma fyrir tónleikana) fórum við að reyna að kaupa miða á Arcade Fire - en kom þá í ljós að það var uppselt. Við gáfumst þó ekkert upp, við Brian fórum bara á staðinn, en hann átti nú þegar 1 miða, þurftum við bara að finna annan - sem reyndist erfiðara en við héldum! allir fyrir utan voru líka að leita að miða. Við fundum þó á endanum kall sem vildi selja okkur á ásættanlegu verði, en þurftum að bruna útí búð til að skipta peningum þar sem að við vorum bæði bara með kort! tókum fyrsta leigubílinn sem við gátum og rétt náðum að koma til baka áður en hann seldi hann öðrum!
Þessir tónleikar voru síðan bara snilld! vorum á frábærum stað þar sem við sáum allt en samt nálægt og þetta var bara frábært! Eftir á fórum við svo á tvenna aðra 'tónleika', einhverjir frægir DJ-ar í risa stórum hvítum tjöldum sem var líka bara gaman :)
-----á sunnudeginum var svo túristast, og farið í 2 tourbus-a, en ég varð ástfangin af borginni. bara allt algjör snilld við hana! veðrið alveg eins og bestu sumardagar heima, stór og örugg og full af lífi! Endalausir staðir til að skoða og vera á og ég veit bara ekki hvað. 10 stór neðanjarðar moll og borgin hefur smá evrópskan brag yfir sér, en samt augljóslega mexikósk :) likin'itlovin't
-----mánudagurinn fór í að finna hluti fyrir íbúðina og svo um kvöldið var farið þangað og skrifað undir samninga og bara tekið á móti henni:)
-----á þriðjudeginum var svo farið að sækja Visað (aðaltilgangur ferðarinnar) og var ég sett í að bíða fyrir utan með öll verðmætin...sat ein inná einhverjum restaurant(mexikóskum'drasl'restaurant hah) með allar töskurnar í fanginu. spjallaði aðeins við einn þjóninn sem hélt nú að Ísland væri einhversstaðar í Bandaríikjunum...score(y). þetta tók allt styttri tíma en ég hélt, en við fórum eftir á að fá okkur að borða og svo var bara keyrt heim. | En það er alveg ljóst að ég ætla að fara þangað aftur, enda heeeeeeeeellingur eftir að skoða! langar þangað núúúúnaaa
- Við Johann ákváðum að kíkja aðeins á Starbucks eftir spænsku og hittum svo þar fyrir Gerardo og Malu sem var bara óvænt ánægja. kíktum með þeim niður að ánni (þar er almenningsgarður) og svo á Mcdonalds. Alltaf gaman þessir óvæntu dagar sem er nóg af hér..
-Einhversstaðara þarna eignaðist ég líka sætasta frænda í heimi! algjör dúlla og hlakka svooo til að fá að hitta hann í eigin persónu....bráðum...
-fannst frábært að hlusta á nokkra útvarpsþætti úr útvarpsviku NFMH hérna úti hah
-í gær(föstud) kíkti ég svo aðeins út með Stefi (frænku) og vinum hennar sem var bara mjög gaman! bónus að eiga svona góða fjölskyldu
- í dag var svo kíkt með fjölskyldunni hennar Violu í la primavera í hádegismat(en er mjög ánægð með að vera að fara þangað næst, þau eru mjög almennileg og hress, og ekki skemmir fyrir að hafa sundlaug og tennisvelli í hverfinu!), en vorum við að borða við hliðina á stöðuvatninu sem er þar (giskaði á ca 1/5 af Þingvallavatni) en fullt af góðum fiskréttum frá héraðinu og var svo kíkt aðeins út á bátinn á vatnið sem var bara gaman, fékk smá eins og ég væri heima uppí sumarbústað :) fyrir utan að Þingvallavatn er þúsundsinnum kaldara, en þó ekki grænt á litinn....um sex leytið skutlaði pabbi hennar okkur svo í hinn hluta hverfisins þar sem að vinir okkar skiptinemarnir og hinir venjulegu krakkarnir voru fyrir og var bara hresst þar! Fékk svo far hjá einum vini mínum heim, og stoppuðum við á svona típiskum mexíkóskum 'stað' til að borða á, bara úti einhverjir með eitthvað borð að selja mat, að þessu sinni elote sem var bara gott! keypti svo nokkrar megaódýrar myndir í góðum gæðum(þeir sýna manni hvernig myndirnar eru á diskunum áður en þú kaupir þá). Fannst btw gaman að keyra eina götu í kvöld, en allt í einu tók ég eftir fullt af köllum með hatta á vegkantinum og fullt af bílum - en tók ekki eftir því fyrr en að Alan (vinur minn sem var að keyra mig) sagði mér að þetta væru tónlistarmenn sem þú getur keypt fyrir partíið hahah, en þá tók ég fyrst eftir öllum hljóðfærunum og hvernig þeir voru klæddir! þarna voru þeir ca 3-4 í hóp, en aðrar götur eru með hópa í kringum 10-12 í hópum, en spila þeir allir Banda, mjög 'hressa' og háværa mexíkóska tónlist! bara fjör á þeim.
ætlað skella mér í sund með Violu á mrg og í leikhús um kvöldið...svo er bara Halloween á leiðinni og dagur hinna dauðu (sem verður bara skrýtnari og skrýtnari eftir því sem ég fæ að vita meira hahah)
sakna ykkar helling
xxxx
btw þykir það miður en eitthvað var tölvan í uppreisn og vildi bara ekki uploada neinum myndum. ætla að bæta þeim við sem allra fyrst!
Elsku Eyrún, frábært að lesa svona skemmtilegar frásagnir af ævintýrum þínum. Það hefur aldeilis verið gaman í ferðinni hjá þér um daginn. Gott að þér lýst vel á næstu fjölskyldu og ert sátt hjá þinni núna. Er eitthvað komið á hreint hvenær þú flytur? Hefur þú eitthvað þurft að segja frá Íslandi þ.e standa upp hjá Rótarý eða í skólanum og segja frá?
ReplyDeleteKnús til þín,
Hófí
Ertu búin með spænskutímana?
ReplyDeleteKv. Hófí
Úff maður, þetta er alveg fáránlega mikið magn af upplýsingum á stuttum tíma! samt mjög gaman að lesa, greinilega fullt að gerast og ,,dagur hinna dauðu'' hljómar eins og eitthvað sjúklega svalt! Ein spurning annars, hvað er mexíkanskur drasl veitingastaður? Er annars að verða geðveikur af þessum endalausu matarlýsingum hjá þér...borðaru ekkert annað en tacos, burritos og á veitingastöðum. kv. McAwesome's bro'
ReplyDeleteHvernig lítur grænmetisljón út??? Hefurðu smakkað svoleiðis? ... eða er ég kannski eitthvað að misskilja ... spænskan mín er nú ekkert svaka góð ...?!! Heppin að komast á hafnaboltaleik og svo bara með partý :) hljómar eins og það hafi bara verið góður slatti af fólki! Hvaða Visa voruð þið að sækja til Guadalajara? Eru baunir ekkert oft á matseðlinum? ég hélt að Mexíkóar borðuðu mikið af þeim! Ertu ekki stundum að spila tónlist, sjálf eða með e-um? Megaknús og kossar, mamma
ReplyDeletemjög gott og skemmtilegt blogg þó ég hafi ekki alveg skilið þetta í byrjun með að þú hafir sett í status að þú vildir að einhver tæki þig með sér?! haha hljómar pínu fyndið :p
ReplyDeleteég er sjúklega abbó að þú hafir farið á Arcade Fire! trúi ekki öðru en þeir séu flottir á tónleikum! eins gott að þú fékkst miða :)
hvaða visa voruð þið að sækja já skildi það ekki? og hvað ertu að bulla með grænmetisljón? grænmetisætuljón eða ljón búið til úr grænmeti? lol.
farðu nú að svara kommentunum :) var btw að skrifa þér bréf fyrir 5 mínútum. það er samt ekkert mjög spennandi hehe lífið mitt er ekki alveg jafn spennandi og þitt þessa dagana!
love you beib.
Mig langar í grænmetisljón???.............eða ekki, veit ekki alveg, hljómar frekar undarlega. Verður klárlega sett á matseðilinn sem við fáum þig til að elda fyrir okkur þegar þú kemur heim!
ReplyDeleteKnúsiknús,
Hófí
Sæl elsku Eyrún mín. Mikið er gaman að lesa bloggið þitt og heyra hvað það er gaman hjá þér.
ReplyDeleteEins og þú veist er litli frændi þinn fæddur og ég hef verið mikið hjá Rönnu. Hann er alveg dásamlegur og ótrúlegt að hugsa um hvað það er stutt síðan þið voruð svona lítil. Nýju mömmunni og litla kút gengur bara vel að fóta síg. Henni í nýju hlutverki og honum sem nýjum einstaklingi. Hlakka til að hitta þig þegar þú kemur heim. Bestu kveðjur frá ömmu je
Hófí: Ég flyt í janúar, en margir voru sammála um að vilja ekki skipta svona rétt fyrir jól eftir að hafa myndað góð tengsl við fjölskylduna/nemann. Ekki ennþá almennilega, en á að flytja 'fyrirlestur/kynningu' í einu fagi í skólanum - þá á spænsku! ætti nú alveg að geta reddað því. En svo förum við í lokaprófið í spænskunni 8.nóvember og þá eru þeir búnir. Guð má vita hvað ég fer að gera á daginn þá..og hófí efast um að þú fáir að smakka á því haha!
ReplyDeleteSindri: Mexíkanskur drasl veitingastaður samanstendur af skýli, eða stað sem er svipaður að flatarmáli og stofan og borðstofan samanlögð, ca 3 starfsmönnum, ódýrum mexíkóskum mat (ss tacos eða gorditas, tortitas osfrv) þar sem ekki er of mikið í boði og húsgögnin eru úr plasti hahah. og neeei ég borða mjög mismunandi á veitingastöðunum, en það eru margar gerðir hér eins og annars staðar :)
Mamma:Grænmetisljónatitillinn kom til vegna þess að 'pabbi' violu var að segja mér frá því að einhver bæjarstjóri hafi verið svo ákafur í niðurskurði hjá dýragarðinum að ljónið fékk ekkert annað en kálhausa og afgangargrænmeti að borða- og skrifuðu þá dagblöðin frétt með þessum titli hah. Vorum að sækja um (klára í raun umsóknina eða eitthvað) Visa þeirra þriggja til bandaríkjanna, sem hafði rétt í þessu runnið út (þurfa að endurnýja á 10 ára fresti). Mjög oft baunir hér! getur séð á einni random matarmynd skál með hálfgerðri 'súpu' sem er samt bara baunir. og tacos con frijoles og bara útum allt! Er varla neitt búin að vera að spila síðasta mánuð en ætla að fara að kippa því í lag!
Dagný:hafði langað að fara á hafnarboltaleikinn en hafði ekki hugmynd um hvernig ég ætti að fara, þannig að ég spurði hvort einhver gæti ekki kippt mér með sér sem væru að fara. Nema hvað að Obed(vinur minn í Brasilíu) vissi að foreldrar sínir væru að fara (með sinn skiptinema) og lét þau vita og þá hringdu þau í mig til að bjóða mér :)
Amma: ótrúlega alveg hreint æðislegt hvað allt er að ganga vel með litla og ég bíð mjög spennt eftir nafninu!
Mínar bestu kveðjur og knúsar og kossar á ykkur öll :)
xoxo
Frábært að fá svörin við öllum þessum spurningum og mér finnst góð hugmynd að vera ekki að flytja ykkur fyrir jól, miklu notalegra að vera hjá fjölskyldunni sem þú þekkir best yfir jólin.
ReplyDeleteEr ekki upplagt að fara að spila meira þegar spænskan dettur út því þá hefur þú meiri tíma, bara hugmynd! Oh hvað ég væri til í að heyra þig tala spænskuna, hef það á tilfinningunni að þú sért komin á gott skrið með hana og efast ekki um að þú rúllir upp þessum fyrirlestri.
Knús, Hófí
NÝTT BLOGG TAKK!¨
ReplyDeleteSammála Dagnýju, væri alveg til í að fá að sjá nýtt blogg hjá þér. Nokkar línur áður en þú ferð til Guadalajara, please!
ReplyDeleteKnús, Hófí